Til hvers að birta kennitöluna hans. Hjálpar það eitthvað við að finna hann ?? Maður spyr sig.
|
Lögreglan lýsir eftir manni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 11.9.2008 | 05:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég hafði í einfeldni minni gengið út frá því að það væri hollara. Núna er það þá staðfest. Hinsvegar er það staðreynd að það er dýrara.
|
Lífrænt ræktað grænmeti er hollara |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 31.10.2007 | 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Beltin bjarga !
Fyrir um það bil 12 árum síðan þegar ég eignaðist frumburð minn fór ég að velta fyrir mér öryggi barna í flugvél.
Ég sá hjón á Reykjavíkurflugvelli vera að fara í flug með ungabarn sitt og þau voru að setja barnabílstól sinn í fragtina.
Ég hafði séð sérstaka flugbarnabílstóla sem höfðu verið teknir í notkun í Bandaríkjunum og kynnti mér hvort slíka stóla væri hægt að finna á Íslandi. En svo var ekki.
Þá langaði mig til að vita hvaða möguleikar væru í boði ef ég vildi bjóða barni mínu upp á sama öryggi og ég fengi sem fullorðin einstaklingur í flugi. Þ.e.a.s. öryggisbelti.
Ég fékk þau svör hjá aðila sem starfaði með flugöryggismál að það væri litið á ungabörn sem handfarangur skv. flugreglugerðum enda væru þau "replaceable" rétt eins og hermenn.
Þá voru nýjar reglugerðir að taka gildi og þessu átti ekki að breyta.
Ég fór með málið til umboðsmanns barna og ætli það sé ekki rykfallið þar allavega hef ég ekki orðið vör við breytingar.
Þarna er verið að brjóta á einstaklingum sem geta ekki varið sig.
Litlu krílin myndu eflaust ibba gogg ef þau gætu.
Dóttir mín fór fyrst í flug þegar ég gat keypt fyrir hana sæti og boðið henni upp á sama öryggi og við foreldrarnir fengum.
Hún er í dag 12 ára gömul og alls ekki "replaceable".
|
Þriggja ára stúlka lifði af flugslys |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 31.10.2007 | 07:10 (breytt kl. 07:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
|
Fíkniefnin vógu 40 kíló en ekki 60 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 19.10.2007 | 10:30 (breytt 22.10.2007 kl. 05:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frúin sendi Erlu sinni perlu á fróni súperflott fljólublá sjóngleraugu í appelsínugulu hulstri frá DK fyrir nokkru. Erla var hinsvegar med bráðaofnæmi fyrir rauðum póstkössum þessi elska svo að hún sótti aldrei gleraugun. Ég fékk því eins og gengur og gerist pakklinginn sendan aftur til mín merktan "ekki vitjað". Hann var þó orðin heldur minni og flatari en þegar hann fór af stað svo að ég reiknaði helst með að hann innihéldi miltisbrand. Ekki það að það sé ekki allt í gotti á milli okkar Erlu. Ég rek svo heldur betur upp stór augu og nánast við þegar ég dreg franska kristilega bænabók úr pakklingnum.
Er trúin að berja að dyrum hjá mér, sem ekki er í kristinna manna flokki ???
Og hefur þá kannski einhver trúaður maður fengið sjónina ???
Ef svo er þá óska ég þér innilega til hamingju og þú krossi minn mátt gjarnan blessa fingralanga pósstarfsmenn. Ekkert endilega í tengslum við þetta mál sem er ennþá óútskýrt ..... heldur bara svona almennt.
Bloggar | 17.10.2007 | 07:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frúin hefur ákveðið að blása út tjáningarstíflunni og hefja hugsanaklíning á ykkur gott fólk.
Þið megið gera fastlega ráð fyrir innsláttarvillum og allskyns tungumála krúsídúllum.
Þannig er það nú bara.
kveðja,
frúin.
Bloggar | 17.10.2007 | 07:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


snorris
isspiss
olafurfa
malacai
bryndisisfold
rassgat
gudjonbergmann
hvitiriddarinn
johannbj
klaralitla
dj-storhofdi
perlaoghvolparnir
salvor
thelmaasdisar
tryggvienator